NETT ÍSLAND var stofnsett í febrúar 2005 og er dótturfyrirtæki portúgalska fyrirtækisins GRUPO NETT sem hefur áralanga reynslu af starfsmannahaldi í Evrópu og Afríku.
NETT ÍSLAND er brautryðjandaverkefni GRUPO NETTs á sviði alþjóðavæðingar, sett á stofn til að stuðla að þróun fyrirtækisins sem þjónustuaðila á alþjóðamörkuðum og þá sérstaklega á viðskiptasviðum er tengjast starfsmannahaldi: afleysingavinnu, starfsmannavali og ráðningum, þjálfun, ráðgjöf við starfsmannastjórnun, útvistun á verkefnum og stjórnendaleit.
NETT ÍSLAND býður upp á öflugar og sveigjanlegar lausnir og stefnir að því að verða ómissandi samstarfsaðili á sviði starfsmannahalds með því að hjálpa viðskiptavinum sínum að auka framleiðni og arðsemi eins og unnt er.