Notkunarskilmálar

GRUPO NETT er eigandi vefseturs þessa og allt innihald þess tilheyrir GRUPO NETT, nema annað sé tekið fram. Notendur vefsetursins eru bundnir ákvæðum eftirfarandi skilmála.

GRUPO NETT getur breytt skilmálum þessum hvenær sem er og án fyrirvara . Ef í ljós kemur að eitthvert ákvæði er ekki í samræmi við lög, ógjaldgengt eða ógilt, hefur það ekki áhrif á önnur ákvæði skilmála þessa.

Notkun

Notanda er óheimilt að breyta innihaldi vefsetursins, né markaðssetja, dreifa, endurgera eða gefa út efni af vefsetrinu án skriflegs leyfis GRUPO NETT. Sé slíkt gert án leyfis verður viðkomandi sóttur til saka í samræmi við viðeigandi lög. Vefsetur þetta er einungis ætlað til einkanota.

Skráð vörumerki og höfundaréttur

Öll skráð vörumerki, fyrirtækismerki, textar, myndir og hugbúnaður á vefsetri þessu eru eign GRUPO NETT, nema annað sé tekið fram og eru varin lögum um einkaleyfi og höfundarétt.

Áreiðanleiki upplýsinga

GRUPO NETT er ekki skuldbundið til að uppfæra upplýsingar eða annað efni á vefsetrinu en áskilur sér rétt til að gera breytingar á vefsetrinu án fyrirvara.

Tengingar við önnur vefsetur

GRUPO NETT ber ekki ábyrgð á innihaldi eða áreiðanleika upplýsinga, né heldur friðhelgi einkalífsins á þeim vefsetrum sem unnt er að tengjast frá vefsetri fyrirtækisins. Slíkar tengingar eru einungis til að veita viðskiptavinum GRUPO NETT þjónustu.

Friðhelgi einkalífsins

Um vefsetur þetta og skilmála gilda lög um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga. Þar af leiðir að GRUPO NETT virðir einkalíf allra notenda og safnar ekki né vinnur með upplýsingar nema að fengnu leyfi. Rekist notendur á upplýsingar sem birtar eru í leyfisleysi, ættu athugasemdir þess efnis að sendast til GRUPO NETT sem mun banna notkun á slíkum upplýsingum.

GRUPO NETT notar persónuupplýsingar til þess að sýna á vefsetrinu tölfræðilegar upplýsingar varðandi störf og verkefni fyrirtækisins. Undir engum kringumstæðum eru upplýsingar látnar í té eða seldar þriðja aðila.

Hafið samband

GRUPO NETT er ávallt reiðubúið til að svara spurningum varðandi skilmála og verndun persónuupplýsinga á vefsetri sínu.

GRUPO NETT

Markaðs- og samskiptadeild
Av. Dr. António Rodrigues Manito, 100 – R/C
2900 - 063 Setúbal
dmc@gruponett.com

Skilmálar þessir tóku gildi í ágúst 2008.